Frá frá Hindisvík kastaði rauðu hestfolaldi undan Akk frá Vatnsleysu í nótt. Fleiri myndir eru væntanlegar seinna. Eins hef ég verið að bæta við myndum af hinum folöldunum jafnt og þétt :)
Strákur frá Vatnsleysu verður í hryssum á Dynjanda í sumar. Verð á folatolli er 40.000 með sónar og girðingargjald innifalið. Hægt er að panta undir hann með því að hafa samband á dynjandi@simnet.is eða hringja í síma 845-3832 (Hanný). Nánar má lesa um Strák með því að smella á nafnið hans hér að framan. Einnig voru að koma inn nýjar myndir af honum sem voru teknar um daginn. Það rignir merfolöldum hér á Dynjanda, en Birta kastaði í gær bleikskjóttri glaseygðri hryssu. Undan Kiljan frá Jaðri. Hrafndís kastaði sínu fyrsta folaldi í gær, en það var rauðtvístjörnótt hryssa undan Akk frá Vatnsleysu. Skráma var síðan köstuð í morgun og átti hún rauðskjótta hryssu undan Strák. Held að það sé bara best að láta myndirnar tala :) Birta kastaði í nótt bleikskjóttri bláeygðri hryssu. Þær eru báðar í eigu Magnúsar Helga Loftssonar í Haukholtum og vil ég nota tækifærið og óska honum innilega til hamingju með þetta dásamlega folald :) Birta fer síðan undir Strák frá Vatnsleysu í sumar og er ég svo heppin að fá það folald. Fleiri myndir eru síðan væntanlegar á næstu dögum, eins eru komnar inn nýjar myndir af Stakk. Glæring kastaði rauðskjóttu hestfolaldi undan Akk frá Vatnsleysu í nótt. Folaldið er mjög stórt og myndarlegt og heilsast þeim mæðginum vel, en við tókum þau inn í reiðskemmu þar sem þau verða í nótt, vegna slæmrar veðurspár. Fleiri myndir eru væntanlegar á næstu dögum :) Ég smellti nokkrum myndum af folaldinu í morgun. Hann er aðeins byrjaður að rétta úr sér og er mjög spakur. Hér að neðan koma nokkrar, fleiri má skoða með því að smella hér. Góðan og guðdómlegan daginn! Fyrsta folaldið fæddist á Dynjanda í dag, en hún Gríma kastaði rauðhjálmskjóttu/slettuskjóttu hestfolaldi. Þetta er jafnframt fyrsta folaldið undan Strák okkar, auk þess að vera fyrsta folaldið sem við fáum undan tveimur hjálmskjóttum hrossum. Ég tók nokkrar myndir af þeim mæðginum í kvöld og mun eflaust taka fleiri á næstu dögum :D Fyrstu myndirnar af Kríu í reið voru teknar í dag. Hún er aðeins nokkurra mánaða tamin og er nýlega byrjuð að tölta. Fleiri myndir er hægt að skoða með því að smella á nafnið hennar hér að framan. Í gær hófst sauðburður og honum lauk sennilegast líka, þar sem við höldum að einn gemsinn sé geldur. Þetta hófst á því að Glókolla bar tveimur hvítum lömbum, hrút og gimbur. Mjög stuttu seinna bar Svandís gemsi sínu fyrsta lambi sem var hvítur hrútur, stór og fallegur. Læt bara myndirnar tala sínu máli, en lömb eru og verða alltaf ómótstæðileg :) Við skelltum okkur niður á hestavöll með hann Skugga í gær. Ég notaði tækifærið og tók nokkrar myndir :) |
RSS Feed